Frá 5.000 kr.

Kráká

Kráká er óbyggðaveiði eins og hún gerist best. Veiðisvæðið er ríflega 35 km langt og liggur að mestu leyti um öræfi í yfir 300 m hæð. Kráká er lindá og því frekar köld. Urriðinn í ánni er hægvaxta og fáliðaður en getur orðið nokkuð stórvaxinn. Einnig veiðist eitthvað af bleikju í ánni.

Upptök árinnar eru í Krákarbotnum og þangað liggur jeppaslóði, en víðast hvar er hann nokkuð langt frá ánni. Veiðiálag er ekki vandamál í Kráká; þar er veitt á fáar stangir, svæðið er gríðarlega langt og oft þarf að ganga talsverðan spöl frá bíl að ánni.

Upplifun veiðimanna þegar þeir koma að nýjum veiðistað er oft sú að þar hafi enginn veitt áður.

ATH. að daglegur veiðitími er að hámarki 12 klukkustundir á tímabilinu 8-22.

Í Krákárbotnum/Lækjum, sunnan Björnsness, er óheimilt að veiða eftir júlílok.

Kráká
29.05 - 30.08
Stangir: 4
Agn: Eingöngu fluga
Kvóti: öllu sleppt.
Bóka núna

Tímabil

29. maí- . 30 ágúst

Veiðin.

Urriði og bleikja

 

 

 

 

 

Hentar

Byrjendum sem lengra komnum.

 

Veiðitímabilið er frá 29 maí – 30 ágúst.

Veiðimenn ráða sjálfir veiðitíma en það þarf að vera að hámarki 12 tímar á dag frá 07:00-24:00. 

 

 

Umsjón

Kráká

568-6050

svfr@svfr.is

Gagnlegar upplýsingar

Neðri hluti Krákár er frekar aðgengilegur en efri hlutinn er upp á heiði og vissara að vera á jeppa þar.


Veiðireglur


Almennar

Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr ánni, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.

Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í rafræna veiðibók.

Sjá einnig almennar veiðireglur SVFR

Veiðireglur

Urriði og bleikja Tímabil: 29.05 - 30.08
Leyfilegt agn: Fluga
Kvóti: Öllu sleppt.
Í Krákárbotnum/Lækjum, sunnan Björnsness, er óheimilt að veiða eftir júlílok.