mars 22, 2026
13:00
Rimaskóli, Rósarimi 11, Reykjavík, 112, Iceland
Nú þegar vorið er á næsta leiti og stutt í að veiðitímabilið hefjist er kominn tími á að keyra ungmennastarfið í gang. Að vanda er fyrsti hittingurinn tileinkaður fluguhnýtingum en búast má við lífi og fjöri á sunnudaginn kemur, 22. mars, frá 13:00-15:00 í Rimaskóla þegar Mikael Marinó, formaður UMFS, býður í heimsókn í skólastofuna sína.
– Kennsla og góð ráð frá vönum fluguhnýturum
– Allt hnýtingarefni og verkfæri á staðnum
Við bjóðum öll áhugasöm ungmenni, 19 ára og yngri, hjartanlega velkomin óháð því hvort þau séu félagar í SVFR eða ekki.
Látið orðið berast – hlökkum til að sjá ykkur! 😊