Nördaveisla SVFR – Krefjandi aðstæður í laxveiði

Dags. viðburðar:

mars 26, 2026

Viðburður hefs:

19:30

Staðsetning viðburðar:

Brasa Restaurant - Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi, 201

Event Description

Þurrkur eða þrusuregn.
Í ökkla eða upp í eyru.
Of mikið vatn eða of lítið.
Barið á botngrjóti.
Lax á þurru landi.

Hver er þín afsökun?

Á Nördaveislu SVFR veltum við fyrir okkur öfgum í laxveiði, þegar aðstæður eru langt frá því að vera fullkomnar og reynir á bæði hæfileika, þrautseigju og veiðimennsku. Hvenær er þetta spurning um kunnáttu og hvenær einfaldlega hamfarir?

Kvöldið verður fullt af fróðleik, sögum, rökræðum og veiðinördaskap í hæsta gæðaflokki.

Húsið opnar kl. 18:00

Dagskrá

19:30 – 20:00 –  Miðsvæðið í Laxá í Aðaldal Ármann Kristjánsson kynnir svæðið og fer yfir helstu staði og aðstæður.

20:00 – 20:30 – Skólabekkurinn – veiði í krefjandi aðstæðum Jón Þór Ólason fer yfir hvernig á að takast á við erfiðar aðstæður við ána.

20:30 – 20:45 – Spurningakeppni Makkersins

20:45 – 21:00 – Hlé

21:00 – 21:50 – Kúltúrhornið Jón Þór, Ármann og Haffi ræða hin ýmsu álitamál laxveiðinnar.

21:50 – 22:00 – Stórglæsilegt happdrætti

Hvar? Brasa Restaurant – Turninum

Hvenær? 26. mars 2026 (fimmtudagur)

Klukkan? Dagskrá 19:30–22:00

Event Location

Brasa Restaurant - Turninum, Smáratorgi 3, Kópavogi, 201