mars 19, 2026
20:00
Garðatorg, Garðabæ, 210
Kvennanefnd SVFR býður upp á búbblur og veitingar, eins og í sönnum Happy hour við árbakkann, á síðasta opna húsi vetrarins. Kveðjum veturinn snemma og undirbúum okkur fyrir veiðitímabilið.
Við ætlum að vera klárar og fylla vopnabúrið fyrir veiðislaginn í sumar með aðstoð Hrafns Caddisbróðir.
Förum yfir græjurnar; línur, tauma, flugur, aukahluti og uppsetningar fyrir mismunandi veiðiaðferðir.
Hlökkum til að sjá ykkur í Sal Level 10, Garðatorgi, fimmtudaginn 19. mars. Húsið opnar kl: 20:00.
Tight lines 🎣