Frá 10.300 kr.

Elliðaár – vorveiði

Vorveiðin hefur notið vaxandi vinsælda meðal félagsmanna SVFR síðustu ár og markar oft upphaf veiðisumarsins í Elliðaánum.

Reykjavík, Elliðaárdalur
Silungur: 01.05 - 16.06
Stangir: 2
Agn: Fluga
Kvóti: sjá síðu
Fjölskylduvænt
Gott fyrir byrjendur
Aðgengilegt
Perla Reykjavíkur
Bóka núna

Tímabil

1. maí til 16. júní

Veiðin

Urriði, 2 stangir, eingöngu fluga með flugustöng. Hirða má silung en hvatt er til hófsemi.

Mæting

Höfuðhylur

Veiðivarsla

821-3977

Gagnlegar upplýsingar


Veiðisvæðið - veiðin

Vorveiðin í Elliðaánum einkennist af breytilegum aðstæðum þar sem árferði og vatnshiti ráða miklu um gang veiðinnar. Veiðin er gjarnan róleg í byrjun tímabils og þá reynir á tækni, þar sem fiskur er oft styggur og dreifður um ána.

Þessi tími hefur almennt gefið góða veiði og er vel nýttur af veiðimönnum. Lífríki árinnar er sterkt og stofn staðbundins urriða í góðu jafnvægi.

Veiðisvæðið nær frá Höfuðhyl að Grófarkvörn. Best veiðist yfirleitt í efri hluta Elliðaánna, þar sem Ármótin og Höfuðhylur eru meðal sterkustu veiðistaða í vorveiðinni.

Athugið að ekki er leyft að veiða nær Elliðavatnsstíflu en 50 metra.

Elliðaár silungur
Veiði hefst: 1. maí
Veiði lýkur: 16. júní
Veiðifyrirkomulag:1/2 dagur, fyrir og eftir hádegi
Morgunvakt: 07:00 - 13:00
Eftirmiðdagsvakt: 15:00 - 21:00
Mæting, staður: Höfuðhylur
Mæting, tími: Korter fyrir vakt
Vinsælar flugur: Hinir ýmsu kúluhausar, þurrflugur og straumflugur
loader-image
Elliðaár – veðurspá
Elliðaár
7:41 e.h., J júní, 2026
temperature icon 26°C
clear sky
Humidity: 57 %
Pressure: 1012 mb
Wind: 3 Km/h
Wind Gust: 14 Km/h
Clouds: 5%
Visibility: 10 km
Sunrise: 4:42 am
Sunset: 9:20 pm
  • Temperature
  • Precipitation
  • Rain Chance
  • Wind
  • Humidity
  • Pressure
10:00 e.h.
temperature icon
21°/25°°C 0 mm 0% 11 Km/h 60% 1013 mb 0 mm/h
1:00 f.h.
temperature icon
19°/21°°C 0 mm 0% 10 Km/h 72% 1014 mb 0 mm/h
4:00 f.h.
temperature icon
17°/17°°C 0 mm 0% 10 Km/h 85% 1015 mb 0 mm/h
7:00 f.h.
temperature icon
19°/19°°C 0 mm 0% 13 Km/h 81% 1017 mb 0 mm/h
10:00 f.h.
temperature icon
21°/21°°C 0 mm 0% 14 Km/h 64% 1019 mb 0 mm/h
1:00 e.h.
temperature icon
25°/25°°C 0 mm 0% 14 Km/h 47% 1019 mb 0 mm/h
4:00 e.h.
temperature icon
26°/26°°C 0 mm 0% 13 Km/h 45% 1020 mb 0 mm/h
7:00 e.h.
temperature icon
23°/23°°C 0 mm 0% 8 Km/h 52% 1021 mb 0 mm/h

Veiðireglur


Vinsamlegast kynnið ykkur veiðireglurnar og virðið þær. Brot á veiðireglum varða fyrirvaralausum brottrekstri úr Elliðaánum, upptöku afla og veiðafæra ásamt öðrum viðurlögum eftir því sem við á.

Gangið vel um veiðisvæðið, valdið ekki jarðraski og hirðið allt rusl. Sýnið náttúrunni virðingu og keyrið ekki utanvega. Allan afla ber að skrá í rafræna veiðibók.

Sjá einnig almennar veiðireglur SVFR

Silungur Tímabil: 1. maí - 16. júní
Leyfilegt agn: Fluga. Eingöngu leyfilegt að veiða með flugustöng.
Kvóti: Enginn kvóti en veiðimenn eru beðnir um að sýna hófsemi.
Veiða má frá Höfuðhyl að og með Grófarkvörn.

Leiðsögn


Leiðsögumenn SVFR eru veiðimenn með mikla og langa veiðireynslu og eru valdir af kostgæfni. Með leiðsögn verður veiðin markvissari, tíminn nýtist betur, og oftar en ekki ánægjulegri. Leiðsögumenn okkar upplýsa veiðimenn um bestu veiðistaðina í ánni, búnaðinn og veiðitækni.

  Markvissari veiði

  Fagleg ráðgjöf