Endurbókanir á ársvæðum SVFR 2027

Kæru veiðimenn

Um leið og við þökkum ykkur fyrir að hafa sótt ársvæði okkar heim í sumar, erum við farin að huga að úthlutunum fyrir næsta ár. -- Hér að neðan er að finna form fyrir þá sem vilja endurbóka sínar stangir eða komast á biðlista fyrir veiðitímabilið 2027. -- Athugið að endurbókanir eiga aðeins við svokallaðan forúthlutunartíma og ársvæði sem ekki fara í formlega úthlutun til félagsmanna. Ársvæði sem ekki er hægt að endurbóka eru t.d. Elliðaárnar, Korpa, Leirvogsá, Gljúfurá, Flókadalsá og Gufudalsá. Önnur ársvæði er hægt að bóka að hluta eða í heild.
Ósk um dagsetningar:(verður að svara)
Hér er gott að koma á framfæri ef þú vilt færa þig til á milli daga eða hefur aðrar séróskir varðandi veiðidaga.
Hér væri gagnlegt að fá ábendingar frá veiðimönnum um hvað betur mætti fara, bæði við ána og í húsinu.
Reikningar verða væntanlega gefnir út í byrjun nóvember. Endilega skráið inn í þennan dálk ef reikningurinn á að vera á annarri kennitölu, t.d. kennitölu fyrirtækis.
Til að geta undirbúið komu þína í veiðihúsið sem best væri gott fyrir okkur að vita áætlaðan fjölda gesta. Verður einn veiðimaður á hverja stöng eða tveir?

Hjálpaðu okkur að gera betur

Hvernig var upplifun þín af ársvæðum okkar á veiðitímabilinu 2026?
Hversu ánægð/ur varstu með veiðihúsið og þjónustuna? (ef við á)
Hversu ánægð/ur varstu með umgjörðina við ána? (T.d. merkingar, veiðivegir eða annað)