Alviðra – Felustaður stórlaxanna

Sogið er vatnsmesta bergvatnsá landsins. Hún kemur úr Þingvallavatni og rennur um Úlfljótsvatn og Álftavatn í Hvítá í Árnessýslu skammt neðan við Þrastarskóg.
Alviðru svæðið er eftirlæti margra stangveiðimanna og þar hafa veiðst margir bikarlaxar. Svæðið er ægifagurt og stórlaxarnir sem sjást af og til á ,,Öldunni” hafa margri andvöku valdið. Hér, sem annars staðar í þessari mestu bergvatnsá landsins, er kjörið að kasta flugu, bæði stutt og langt. Með uppkaupum neta í grennd við Selfoss virðist sem að laxgengd sé að aukast til muna. Undanfarin tvö ár hefur veiðin í Alviðru verið líkt og ár árum áður og því vinsældir veiðisvæðisins aukist á nýjan leik. Sumarið 2009 var gott veiðisumar í Soginu en þá veiddust 718 laxar. Á svæði Alviðru veiddust 56 laxar.

Athugið að í stað veiða/sleppa reglu í september hefur verið settur tveggja laxa kvóti á hverja dagsstöng. Einnig eru veiðimenn minntir á að gæta ýtrustu varkárni þegar vaðið er út í ána og nota björgunarvestin sem geymd eru í veiðihúsinu.
Sog Alviðra - Almennar upplýsingar
Staðsetning:Suðurland, u.þ.b. 50 km frá Reykjavík.
Veiðisvæði:Veiðisvæðið er vesturbakki Sogs fyrir landi Alviðru frá Álftavatni að ármótum við Hvítá og austurbakki neðan brúar við Þrastarlund að sömu ármótum.
Tímabil:14. júní til 28. september.
Veiðileyfi:Einn eða fleiri dagar í senn.
Daglegur veiðitími:Veitt er frá morgni til kvölds, kl. 7-13 og 16-22. Eftir 14. ágúst er veitt á seinni vaktinni frá kl. 15-21.
Fjöldi stanga:3.
Leyfilegt agn:Fluga, maðkur, spónn.Fluga, maðkur og spónn. Eftir 1. september er kvóti tveir laxar á stöng á dag. Eftir það skal veitt og sleppt. Veiðimenn eru hvattir til þess að sleppa stórlaxi.
Vinsælar flugur:Rauð og Svört Frances, Snælda.
Veiði síðastliðið ár:Sumarið 2010 veiddust 183 laxar á svæði Alviðru
Umsjónaraðili:

Veiðihús

Á Alviðru er ágætt veiðihús með þremur svefnherbergjum. Í húsinu er rafmagn og heitt vatn. Veiðimenn mega koma í húsið klukkustund eftir að veiðitíma lýkur daginn fyrir veiðidag og ber að rýma það á sama tíma brottfarardag. Veiðimenn leggja sjálfir til sængurfatnað, mat og hreinlætisvörur. Á staðnum er gasgrill, sængur og koddar. Veiðimenn eru minntir á að gæta ítrustu varkárni þegar vaðið er út í ána og nota björgunarvestin sem geymd eru í veiðihúsinu. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og taka með sér rusl.

Leiðarlýsing að veiðihúsi

Veiðihúsið stendur rétt fyrir ofan gatnamót Grafningsvegar, (leiðir merktar 350 og 35 áður en komið er að brúnni við Þrastarlund.) Ekið er frá Grafningsvegi áleiðis upp heimreið að Alviðrubænum og síðan til hægri.
“Sogið er einstakt. Ímyndaðu þér baráttuna við stórfisk í þessu mikla fljóti. Á bökkum Sogsins hverfur oft hugurinn til gömlu góðu daganna og upp renna myndir af ógnarveiði á fyrri hluta aldarinnar. Það er varla hægt að hugsa sér haust án baráttu við fisk í Soginu.”María Anna Clausen
Fara efst á síðu
 
 
Icelandic English Spanish German French